Fréttir og Spjall (News)
3.9.2010
Laus veiðileyfi
Lausar stangir i Laxá í Aðaldal Nessvæðið.. 8-9 sept og 12-14 sept.. Það eru síðustu forvör að næla sér í síðustu STÓRlaxana í Aðaldalnum en nóg hefur verið af þeim í sumar..
Hérna er smá sýnishorn af þeim stóru..

Rock með 24 punda

Ari með 26 punda


Völundur með 109cm



Hilmar með glæsilegan hæng
Ef þetta er ekki til að kveikja í mönnum hvað þarf þá.. Nú er bara að skella sér ínná www.svfr.is og bóka þessar stangir sem losnuðu þarna :) ef enginn fer þá fer Mokveiðifélagið og nær í þennan 30 punda plús :)
31.8.2010
Gæd Arinn með þetta

Óskum við Ara til Hamingju með tröllið...
28.8.2010
Gunna Mok
Doktorsfrúinn Gunna Mok fór í Svarfaðadalsá
Eins og flestir vita er Gunna orðin ein harðasta fluguveiðikona
landsins og var ekki búinn að komast í veiði lengi þar sem
Doktorinn er varla búinn að vera heima sökum veiðiferða.
Gunna ákvað í vikunni að nú væri nóg komið henti börnunum
í Jóa Máf hann var hvort sem er bara á leið í ber eða eitthvað álýka
Doktorinn fékk ekki að fara með og var heima að skúra og laga til.
Til að gera langa sögu stutta þá ætlaði Gunna nú bara að sjá
hvort hún næði ekki að setja í svo sem eina bleikju en í staðin
fékk ún 67cm lax, fyrsti lax sumarsins í ánni, geri aðrir betur.
Gunna vildi koma því á hreint að veiðifélaginn hennar var með þessa kaststöng sem er þarna í baksýn, hún veiddi þetta á flugu
með svona stöng að hún er búinn að gleyma hvernig það er gert.
26.8.2010
Aðaldalurinn og Ari
Það fór líklega ekki framhjá neinum að Mokveiðifélagið var
í Aðaldalnum um síðustu helgi.

En Mokveiðifélagið var nú með mann á bakvið tjöldin....
hann Ara Hermóð Jafetsson gæd við Laxá í Aðaldal þvílíkur snillingur.

Hæ fæv

Ari spíttist upp og niður Aðaldalinn eins og hann væri með udanborðsmótor

nýji orkudrykkurinn frá powerade aðalega romm og kók
Þegar menn fara í Aðaldalinn þá er engin spurning um að
tala við hann og láta hann leiðsegja sér um svæðið, óendalegur
viskubrunnur um ánna.
Mokveiðimenn eru líklega búnir að læra meira um svæðið
en margir sem hafa farið þarna í fjölda ára.
Þannig að þó svo að við séum ótrúlega góðir,flínkir,
veiðilegir,fisknir og skemmtilegir veiðimenn
þá á Ari mikið þakklæti skilið fyrir ferðina og ekki alveg víst að við
hefðum fengið svona marga án hans.

Honum tókst meira að segja að láta Doktorinn fá 1.lax og 1 urriða í tveimur köstum
Takk kærlega fyrir okkur Nessvæði og síðast en ekki síst takk Ari og
sjáumst á næsta ári ef ekki stax í sept.
p.s. Annað hvort er maður með þetta eða ekki....... við erum með þetta
Myndbandið af fiskinum hans Steina er í fullri vinslu.
24.8.2010
Aðaldalurinn
Mokveiðifélagið kom sá og sigraði
Fyrsta ferð Mokveiðifélagsins í Aðaldalinn nessvæði er búin og var alveg geðveik.
Strákarnir enduðu í 14 löxum og svo landaði Rock trölli.

Rock með kvikindið 103cm 24pund tekin á Skrögg

Ekki leist nú Ara gæd vel á skagfirðingana þegar þeir komu vopnaðir
einhendunum sínum og sögðust vera komnir til að veiða.
Allt byrjaði þetta með rólegheitum og voru strákarnir fisklausir eftir
fyrstu vaktina og leist nú ekki alveg nógu vel á veðrið, brjálað rok og
mígandi rigning.

Baukurinn með 85cm hrygnu tekin á rauða Kröflu
Svo fóru hlutirnir að gerast og voru strákarnir að fá allt
upp í 5 fiska á vakt.

Magnum44 með 80cm hrygnu tekin á Kolskegg
Síðasta morguninn var svo hátindi ferðarinnar náð
Þorsteinn Fríman Guðmundsson setti í og landaði trölli,
103cm hængur viktaður í háfnum 24pund.
Þar með fór Rock ekki bara í 20punda klúbbinn heldur hljóp
yfir nokkur pund í viðbót.
Hollið endaði svo í 40 löxum og þykir víst bara nokkuð gott.

Morgan með 73cm hæng veiddan á Iðuna
Doktorinn kom svo og kíkti á stákana og fékk að kasta einu sinni
og vitið menn fékk fisk í fyrsta rensli.
71cm hæng tekin á Orange Kröflu

Doktorinn með 71cm hæng tekinn á Orange kröflu
Fullt af myndum eru í myndaalbúminu frá ferðinni og fleiri á leiðinni.
20.8.2010
Hitað upp fyrir Aðaldalinn
Morgan hitaði upp fyrir Aðaldalinn með því að gæda
í Húseyjarkvíls síðustu daga.
Eins og við er að búast þegar fólk ræður sér Mokveiðimann
til að gæda sig var flott veiði og komu upp nokkrir glæsilegir fiskar.
9 laxar og 1 sjóbirtingur komur á land ásamt slatta af sigurliðum (urriðum)
og voru laxarnir ekki af verri endanum 82,83,84,90 og 97cm...sæææælllll
Árni með ein alveg ekta Húseyjarkvíslar hæng 97cm
Einn sjóbirtingur fékkst líka og er ljóst að hann fer að hella
sér í ánna og verður öruglega eitthvað af honum komið
þegar Mokveiðifélagið fer 28.ágúst.
Þarna var á ferðinni skemtilegur hópur fólks, karla og kvenna og
hægt er að segja að konurnar hafi slegið körlunum við með því að
veiða 5 laxa af þessum 9, þar á meðal veiddi ein konan Áslaug
83cm og 90cm lax.
Árni reddaði reyndar stráunum með 97cm tröllinu.
Halli með flottan 60cm sjóbirting
20.8.2010
Gæsin hafinn

Það hefur ekki farið fram hjá mönnum að gæsatímabilið er hafið ..........Reynar höfðum við allveg misst af því þar sem laxveiðin stendur sem hæðst hjá okkur.. En mikið hefur séðst af fugli hérna niður í byggð og veit það á gott.. Mokveiðifélagið þarf heldur betur að sína sitt rétta andlit í haust og fylla allar kistur þar sem eftir spurnin er mikill þessa stundina, menn virðast ekki vera búnir að gleyma kreppunni og keppast við að fá eitthvað gott í kistuna..

En sennilega verður ekkert farið fyrr en í miðjan sept...

16.8.2010
Aðaldalurinn........

Hólí mólí 4 dagar í Aðaldalinn
Oft hafa Mokveiðimenn farið á ný svæði og gengið bara
svona helvíti vel og jafnvel framar björtustu vonum.
Nú er hinsvegar búið að hræða meðlimi félagsins svo mikið
að sumir hverjir eru farnir að efast um eigið ágæti.

Menn tala um að það það verði að vera með tvíhendur, þessi fluga verður
að vera í boxinu, loftslagið þarf að vera á litin eins og flugan og botnin, fiskurinn
taki ekki nema á heila tímanum og svo má víst ekki gleyma að mæta með bindi.
Sumir meðlimir taka þessu þó með ró og segja eins og svo oft áður... þetta er ekkert mál

Rock segist ekkert þurfa tvíhendu hann á víst gamlar sjóstangir sem hann
segist hafa dregið allt upp í 30 punda þorska á
Búið er að bóna allar línur 2-3 sinnum, endurraða í fluguboxin aftur
og aftur og búið að velja sér bindi og skyrtu til að vera í.

Við ætlum að fá einn svona langan þurfum bara að vera 4 á stöng
Þetta bara getur ekki klikkað.... er það nokkuð?
13.8.2010
Mokveiðideildin
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig i Mokveiðideildina
http://fantasy.premierleague.com/
Til að skrá sig er bara farið og búið til lið og svo þegar það er búið
þá fara menn í leagues og svo í join leagues og stimpla inn kódan
fyrir mokveiðideildina sem er 862429-192650 og muna eftir að hafa bandstrikið.
Fótboltinn er einnig í hávegðum hafður hjá Mokveiðifélaginu eins og veiðin
og flykkjast menn einna helst undir Man.Utd menn og Liverp menn.

Fantasy premierleague er skemmtilegur leikur sem er alveg bráðnauðsynlegur
fyrir alla sem hafa áhuga á Enska boltanum.
Þú velur stillir upp þínu liði og fylgist svo með því í allan vetur
og meðan keppnistímabilið er í gangi, getur gert skiptingar o.f.l.
Hægt er að hringja í Baukinn ef það eru einhver vandræði með þetta
847-9841
Koma svo og skrá sig.... það er sérstaklegar skorað á óðflugamenn
að vera með.




