Fréttir og Spjall (News)

6.6.2010

Stórlaxa dráp

    
   
    
Það fer nú ekki milli mála að laxveiðin er byrjuð og hófst hún í gær í Norðurá og Blöndu og var byrjunin bara hin besta... En það sem fór kannski aðeins fyrir brjóstið á manni var að sjá alla þessa laxa drepna í Blöndu og voru þetta hinir vænstu fiskar.  Einn 20 punda sleit sig lausan sem betur fer..  

        
                                                                                       Bjarni með 80cm og honum var sleppt

Annað var upp á teningum hjá stjórn SVFR sem opnaði Norðurá en þar var öllum fiski sleppt nema þá einum sem kokgleypti og blæddi mikið úr og var drepinn..  Þetta hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en það virðist ekki miklum árangri skila í sumum ám...  En ljóst er það að þeir fiskar sem drepnir voru í Blöndu eiga ekki sjéns að gefa af sér stórlaxa í framtíðinni...

    
                          Þessi er STÓR og honum var sleppt eða það sögðu þeir....  :)

Skrifað 6.6.2010 kl. 22:00 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 467
Gestir í dag: 120
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424269
Samtals gestir: 96569
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:22:14