Fréttir og Spjall (News)

11.6.2010

Doktorinn er komin Austur


Doktorinn og fjölskylda eru farin Austur að draga björg í bú.

                        
                                      Guðrún í fyrra þegar var farið Austur

Doktorinn gat ekki beðið eftir að komast í veiði sem er ekki nema von
þar sem það eru enn einhverjir 20 dagar í veiðina í Húseyjarkvísl.

Net voru lögð í vötnin í gær og í dag á að reyna eitthvað á stöng.

Myndir og fréttir af Doktornum og fjölsk. verða birtar um leið og þær berast.

Menn eru alveg að verða friðlausir að komast í veiði og hérna er flott myndskeið
sem ofumljósmyndarinn Þorsteinn F Guðmundsson tók á bökkum Hólsár í Fyrra.

                                       
                                              Skipt um flugu og hvað annað en Kolskegg

                   
                                                        Bara bing bara búm

          

    

    

    

Veiðin er rétt að bresta á guði sé lof að Doktorinn sé Geðlæknir
og þessa dagana er dælt í mannskapinn róandi og klukkutíma símatími við Doktorinn á dag er að bjarga því sem bjargað verður.

En HM er líka að byrja emoticon það bjargar okkur flestum líka fram að veiði.

         
    "Dómari!! ég er svolítið slæmur í auganu" held ég að Rooney sé að segja emoticon

                      Hann er allavega mjög kurteis að sjá eins og alltaf




Skrifað 11.6.2010 kl. 11:41 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 453
Gestir í dag: 116
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424255
Samtals gestir: 96565
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:00:36