Fréttir og Spjall (News)
25.6.2010
Pant vera svona hress 80ára
Mokveiðifélagið hefur ákveðið að gera Jón Bónda í Jökuldalnum
að heiðursfélaga Mokveiðifélagsins.
Jón er eins og margir vita tengda pabbi Doktorsins, og er svona einn af þessum af gamla skólanum og er sjálfsagt einn af öflugri veiðimönnum
sem maður hefur rekist á.
Ekki er að sjá að Jón sé að verða 80 ára í haust og er hann eins og
unglamb um öll fjöll og firnindi í Jökuldalnum.
Jón verður líklega eitthvað í för með Mokveiðifélaginu fyrir austan
þegar félagið verður í Jöklu í sumar, en Jónshylur í Jöklu er nú einmitt
skýrður eftir þessum mikla manni
Glæsilegur hylur Jónshylur í Jöklu
Jón er alveg svakaleg skytta og lætur sig nú ekki muna um að liggja
fyrir tófu í einhverja klukkutíma.
Flottur
Rebbi dauður
Nú á dögunum fór Jón og skaut sel sem var búinn að vera
gera mönnum lífið leitt í ós fögruhlíðarár fyrir austan.
Rambó hvað??
Guðrún dóttir Jóns og kona Doktorsins verður líklega jafn öflug
og pabbi sinn í framtíðinni og nokkuð ljóst þykir að síðasta sumar
þegar Doktorinn var heima við og sá um heimilisstörfin meðan Guðrún
var við veiðar er bara byrjuninn
Vonandi fáum við nú samt að hafa Doktorinn með okkur
áfram í Húseyjarkvíslarhollunum.

Jón að fara yfir undirstöðuatriðin með Guðrúnu
Já eins og segir Pant vera svona þegar maður er að detta í 80 ára aldurinn
Flettingar í dag: 467
Gestir í dag: 120
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424269
Samtals gestir: 96569
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:22:14




