Fréttir og Spjall (News)

29.6.2010

Húseyjarkvísl opnun


         

Húseyjarkvíslinn var opnuð á Föstudaginn og veiddust 7 laxar, allir vænir
tveggja ára laxar.

Valli var svo að byrja í gær og var ekki lengi að setja í og landa
einum 97 cm í laxhyl.

Valli og félagar eru nú ekki búnir að stunda veiðina stíft og hafa farið 
yfir þetta í rólegheitum.

Að sögn vall er fiskur komin um alla á og talsvert af honum, þeir 
félagar voru komnir með einhverja 4 fiska þrátt fyrir 20° hita og logn
sem eru einar verstu aðstæður sem hægt er að fá í Húseyjarkvísl
þ.e.a.s lognið aðalega.

Kvíslin er þá kominn í einhverja 13 laxa sem þykir mjög gott svona snemma
og þó sérstaklega þar sem Mokveiðifélagið á eftir að fara og veiða.

                 
                                                 Valli með annan flottan

Nú eru aðeins 4 dagar í að Mokveiðifélagið leggi land undir fót og fari
á heimaslóðir, spenningurinn er að verða óbærilegur.

Skrifað 29.6.2010 kl. 15:48 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 169
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 201
Samtals flettingar: 426030
Samtals gestir: 96977
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 04:44:25