Fréttir og Spjall (News)
16.7.2010
Live Lax lax lax og aftur lax
Rock og Killerinn eru mættir í Laxá á Skaga.

Það er ræs... hann er að stökkva um alla á
Þeir félagar dróu efra svæðið sem eins og þeir orðuðu "þetta rennur varla og
maður á bágt með að trúa því að lax geti gengið svona langt uppeftir núna."
Magnum44 eða "Logi Geirs" eins og menn eru farnir að kalla hann
tók sé frí í dag til þetta að "gæda þá" ætlar bara að taka myndir og svona
ekkert að veiða
jaa ekki nema mesta lagi eina þeirra

Logi Geirs má ekki sjá markið þá tekur hann skotið
Sumir mega ekki sjá vatn þá eru þeir komnir út í
Það er helst að frétta af fyrri vaktinni að Rock er að sjálfsögðu
búinn að rífa upp einn lax í vatnsleysinu.

Kolskeggur virkar ekki bara á þessa stóru
Reyndar ekki nema 10cm en hann var víst mjög sprækur
og erum menn að skjóta á c.a. 20.pund miðað við hversu
þykkur hann var
Killerinn og Rock eru þó mjög bjartsýnir fyrir komandi átök
eftir hádegi og nokkuð ljóst er að það verður brjólað að gera
hjá Magnum að taka myndir.
Fréttir af þeim félögum verða settar inn um leið og eitthvað heyrist.
16:00
5.laxar sjást í fyrsta hyl
16:30
Ekkert....... engin hreyfing....
16:45
Rock dettur í ánna.... smá blautur og drullugur
Fékk ekki aðstoð frá Loga Geirs né killernum.. gáfu honum víst bara
augnaráð og vildu meina að hann hafi fælt fiskin
16:55
Magnum44 rennir í hylinn.....

Bíddu bíddu....... 16:55
er þetta ekki maðurinn sem ætlaði að gæda og taka myndir???
Já og keyra en gat það því miður ekki þar sem undirstaða morgunmatarins
hjá honum var Víking Gyltur
17:15
Ekkert
Það er nokkuð ljóst að Morgan er ekki með
Jæja það hlýtur þá að fara koma fiskur.... annars þarf að endurskoða
nafnið á veiðifélaginu
17:45
Bara Bing bara b..........................ekki neitt
18:00
4 tímar til stefnu menn verða að fara að redda þessu....
það er ekki hægt að fara senda nýbakaðan pabban norður til að redda þessu.
18:05
Nýjustu fréttir eru að Baukurinn er á leiðinni........jæja ef hann reddar þessu
ekki þá þarf að hringja í Doktorinn....
18:15
Nei Baukurinn hætti við...... ætlar ekki að láta bendla sig við svona aflabrögð
18:30
Jæja það er eitthvað að gerast......

Nei nei það er ekki rassgat að gerast....
Killerinn er lagstur í brekkuna...
19:25
jæja enn ekkert að gerast.
Baukurinn fór fram á að ef Mokveiðifélagið núllar þurfa þeir sem
eru í veiðiferðinni að greiða einhverskonar sekt...
ekki er búið að ákveða hvort um peningasekt eða áfengissekt
verður um að ræða.. en Baukurinn lagði til að hver maður skildi
leggja eina Captain Morgan flösku í flöskusjóð Mokveiðifélagsins.
19:30
Ég hef nú samt fulla trú á að Rock setji nú í einn fyrir 22:00
Tippa á svona uppúr Kl 20:00
20:00
Yeeeeeesssssssssssssssss
Rock is in da house
Staðsetning: Vonarhylur (á vel við þessum aðstæðum)

67cm glæsilegur hængur á Gula Kröflu

Menn eru að redda sé fyrir horn.... já það er pressa að vera í Mokveiðifélaginu.
Nú er bara að sjá hvort Killerinn ja nú eða jafnvel Logi Geirs setji
í eitthvað.
Rock er komin í Koníak og Kampavín og syngur bara "Rjómi og humar og smjör"
20:30
Bara bing bara bong.........
Magnum44 er búinn að setja í hann
Nú er maður farinn að kannast við félagsmenn

Flottur smálax sem tók koskegginn hvað annað..... og í sama hyl
Vonarhyl.....
þá er það bara Killerinn eftir já og Magnum junior..
21:00
Klukkutími eftir
21:50
Roooooock

61cm lax á gula kröflu

Þorsteinn Fríman Guðmundsson er endanlega að redda þessu......
61cm lax á Gula kröflu
Lokatölur 3 laxar og slatti af sigurliðum
fleyri myndir eru komnar í myndaalbúm
Flettingar í dag: 453
Gestir í dag: 116
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424255
Samtals gestir: 96565
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:00:36



