Fréttir og Spjall (News)

3.9.2010

Laus veiðileyfi

Lausar stangir i Laxá í Aðaldal Nessvæðið..  8-9 sept og 12-14 sept..  Það eru síðustu forvör að næla sér í síðustu STÓRlaxana í Aðaldalnum en nóg hefur verið af þeim í sumar..
Hérna er smá sýnishorn af þeim stóru..

            
                                                                                         Rock með 24 punda 
            
                                                                                          Ari með 26 punda
             

            
                                                                                   Völundur með 109cm
            

             

            

            
                                                                     Hilmar með glæsilegan hæng
            

Ef þetta er ekki til að kveikja í mönnum hvað þarf þá.. Nú er bara að skella sér ínná www.svfr.is og bóka þessar stangir sem losnuðu þarna   :)  ef enginn fer þá fer Mokveiðifélagið og nær í þennan 30 punda plús   :)

Skrifað 3.9.2010 kl. 14:37 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

31.8.2010

Gæd Arinn með þetta

Það er ekki neinum blöðum um það að fletta að hann Ari gædinn okkar úr Aðaldalnum hefur lært eitthvað af okkur.  Hann landaði einum 26 punda risa úr Aðaldalnum nú á dögunum..  Viðspurður við fréttamann veiðimenn.com sagðist Ari hafa lært mikið af strákunum, þessum skrítnu sem komu vopnaðir einhendum og Captein Morgan, en þeir hefðu heldur betur sýnt sitt rétt andlit með 15 laxa og einn 24 punda á lokadegi..  Ég fór og hitti á þá félaga á Akueyri áður en ég átti að byrja og fékk hjá þeim leyniflugurnar sem þeir voru með og viti menn ekki þurfti að bíða lengi eftir árangri segir Ari við fréttamann...



Óskum við Ara til Hamingju með tröllið...

Skrifað 31.8.2010 kl. 20:10 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.8.2010

Gunna Mok


Doktorsfrúinn Gunna Mok fór í Svarfaðadalsá

Eins og flestir vita er Gunna orðin ein harðasta fluguveiðikona
landsins og var ekki búinn að komast í veiði lengi þar sem
Doktorinn er varla búinn að vera heima sökum veiðiferða.

Gunna ákvað í vikunni að nú væri nóg komið henti börnunum
í Jóa Máf hann var hvort sem er bara á leið í ber eða eitthvað álýka emoticon

Doktorinn fékk ekki að fara með og var heima að skúra og laga til.

Til að gera langa sögu stutta þá ætlaði Gunna nú bara að sjá
hvort hún næði ekki að setja í svo sem eina bleikju en í staðin
fékk ún 67cm lax, fyrsti lax sumarsins í ánni, geri aðrir betur.



    
Gunna vildi koma því á hreint að veiðifélaginn hennar var með þessa kaststöng sem er þarna í baksýn, hún veiddi þetta á fluguemoticon  að sjálfsögðu, enda svo langt síðan hún kastaði
með svona stöng að hún er búinn að gleyma hvernig það er gert.



Skrifað 28.8.2010 kl. 11:21 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.8.2010

           '>' '>

Skrifað 28.8.2010 kl. 11:20 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.8.2010

Aðaldalurinn og Ari


Það fór líklega ekki framhjá neinum að Mokveiðifélagið var
í Aðaldalnum um síðustu helgi.

               

En Mokveiðifélagið var nú með mann á bakvið tjöldin....
hann Ara Hermóð Jafetsson gæd við Laxá í Aðaldal þvílíkur snillingur.

                  
                                                               Hæ fæv

               
                   Ari spíttist upp og niður Aðaldalinn eins og hann væri með udanborðsmótor

                                
                                   nýji orkudrykkurinn frá powerade aðalega romm og kók

Þegar menn fara í Aðaldalinn þá er engin spurning um að
tala við hann og láta hann leiðsegja sér um svæðið, óendalegur
viskubrunnur um ánna.

Mokveiðimenn eru líklega búnir að læra meira um svæðið
en margir sem hafa farið þarna í fjölda ára.

Þannig að þó svo að við séum ótrúlega góðir,flínkir,
veiðilegir,fisknir og skemmtilegir veiðimennemoticon
þá á Ari mikið þakklæti skilið fyrir ferðina og ekki alveg víst að við
hefðum fengið svona marga án hans.

                        
      Honum tókst meira að segja að láta Doktorinn fá 1.lax og 1 urriða í tveimur köstumemoticon

Takk kærlega fyrir okkur Nessvæði og síðast en ekki síst takk Ari og
sjáumst á næsta ári ef ekki stax í sept.

p.s. Annað hvort er maður með þetta eða ekki....... við erum með þettaemoticon

Myndbandið af fiskinum hans Steina er í fullri vinslu.

Skrifað 26.8.2010 kl. 17:11 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.8.2010

Aðaldalurinn


Mokveiðifélagið kom sá og sigraði emoticon 

Fyrsta ferð Mokveiðifélagsins í Aðaldalinn nessvæði er búin og var alveg geðveik.

Strákarnir enduðu í 14 löxum og svo landaði Rock trölli.


          
                                 Rock með kvikindið 103cm 24pund tekin á Skrögg

           
                                            

Ekki leist nú Ara gæd vel á skagfirðingana þegar þeir komu vopnaðir
einhendunum sínum og sögðust vera komnir til að veiða.

Allt byrjaði þetta með rólegheitum og voru strákarnir fisklausir eftir
fyrstu vaktina og leist nú ekki alveg nógu vel á veðrið, brjálað rok og
mígandi rigning.


                   
                            Baukurinn með 85cm hrygnu tekin á rauða Kröflu

Svo fóru hlutirnir að gerast og voru strákarnir að fá allt
upp í 5 fiska á vakt.

                  
                             Magnum44 með 80cm hrygnu tekin á Kolskegg

Síðasta morguninn var svo hátindi ferðarinnar náð
Þorsteinn Fríman Guðmundsson setti í og landaði trölli,
103cm hængur viktaður í háfnum 24pund.

Þar með fór Rock ekki bara í 20punda klúbbinn heldur hljóp
yfir nokkur pund í viðbót.emoticon

Hollið endaði svo í 40 löxum og þykir víst bara nokkuð gott.

                 
                                Morgan með 73cm hæng veiddan á Iðuna

Doktorinn kom svo og kíkti á stákana og fékk að kasta einu sinni
og vitið menn fékk fisk í fyrsta rensli.
71cm hæng tekin á Orange Kröflu

             
                                                    Doktorinn með 71cm hæng tekinn á Orange kröflu

Fullt af myndum eru í myndaalbúminu frá ferðinni og fleiri á leiðinni.

Skrifað 24.8.2010 kl. 19:25 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.8.2010

Hitað upp fyrir Aðaldalinn


Morgan hitaði upp fyrir Aðaldalinn með því að gæda
í Húseyjarkvíls síðustu daga.

Eins og við er að búast þegar fólk ræður sér Mokveiðimann
til að gæda sig var flott veiði og komu upp nokkrir glæsilegir fiskar.

9 laxar og 1 sjóbirtingur komur á land ásamt slatta af sigurliðum (urriðum)
og voru laxarnir ekki af verri endanum 82,83,84,90 og 97cm...sæææælllll

     
                               Árni með ein alveg ekta Húseyjarkvíslar hæng 97cm

Einn sjóbirtingur fékkst líka og er ljóst að hann fer að hella
sér í ánna og verður öruglega eitthvað af honum komið
þegar Mokveiðifélagið fer 28.ágúst.

Þarna var á ferðinni skemtilegur hópur fólks, karla og kvenna og
hægt er að segja að konurnar hafi slegið körlunum við með því að 
veiða 5 laxa af þessum 9, þar á meðal veiddi ein konan Áslaug
83cm og 90cm lax.

Árni reddaði reyndar stráunum með 97cm tröllinu.

                    
                                              Halli með flottan 60cm sjóbirting
  

Skrifað 20.8.2010 kl. 14:57 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.8.2010

Gæsin hafinn


   

Það hefur ekki farið fram hjá mönnum að gæsatímabilið er hafið ..........Reynar höfðum við allveg misst af því þar sem laxveiðin stendur sem hæðst hjá okkur..  En mikið hefur séðst af fugli hérna niður í byggð og veit það á gott.. Mokveiðifélagið þarf heldur betur að sína sitt rétta andlit í haust og fylla allar kistur þar sem eftir spurnin er mikill þessa stundina, menn virðast ekki vera búnir að gleyma kreppunni og keppast við að fá eitthvað gott í kistuna..

   

En sennilega verður ekkert farið fyrr en í miðjan sept...

                 

Skrifað 20.8.2010 kl. 12:27 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

16.8.2010

Aðaldalurinn........


                 

Hólí mólí 4 dagar í Aðaldalinnemoticon

Oft hafa Mokveiðimenn farið á ný svæði og gengið bara
svona helvíti vel og jafnvel framar björtustu vonum.

Nú er hinsvegar búið að hræða meðlimi félagsins svo mikið
að sumir hverjir eru farnir að efast um eigið ágæti.

               

Menn tala um að það það verði að vera með tvíhendur, þessi fluga verður
að vera í boxinu, loftslagið þarf að vera á litin eins og flugan og botnin, fiskurinn
taki ekki nema á heila tímanum og svo má víst ekki gleyma að mæta með bindi.

Sumir meðlimir taka þessu þó með ró og segja eins og svo oft áður... þetta er ekkert mál emoticon  annað hvort er maður með þetta..... nú eða ekki emoticon 

                
           Rock segist ekkert þurfa tvíhendu hann á víst gamlar sjóstangir sem hann
                                 segist hafa dregið allt upp í 30 punda þorska á emoticon

Búið er að bóna allar línur 2-3 sinnum, endurraða í fluguboxin aftur
og aftur og búið að velja sér bindi og skyrtu til að vera í.

                      
                 Við ætlum að fá einn svona langan þurfum bara að vera 4 á stöng

Þetta bara getur ekki klikkað.... er það nokkuð? emoticon


Skrifað 16.8.2010 kl. 16:21 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

13.8.2010

Mokveiðideildin


Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig i Mokveiðideildina
http://fantasy.premierleague.com/

Til að skrá sig er bara farið og búið til lið og svo þegar það er búið
þá fara menn í leagues og svo í join leagues og stimpla inn kódan
fyrir mokveiðideildina sem er 862429-192650 og muna eftir að hafa bandstrikið.

Fótboltinn er einnig í hávegðum hafður hjá Mokveiðifélaginu eins og veiðin
og flykkjast menn einna helst undir Man.Utd menn og Liverp menn.

  

Fantasy premierleague er skemmtilegur leikur sem er alveg bráðnauðsynlegur
fyrir alla sem hafa áhuga á Enska boltanum.

Þú velur stillir upp þínu liði og fylgist svo með því í allan vetur
og meðan keppnistímabilið er í gangi, getur gert skiptingar o.f.l.

Hægt er að hringja í Baukinn ef það eru einhver vandræði með þetta
847-9841

Koma svo og skrá sig.... það er sérstaklegar skorað á óðflugamenn
að vera með.


Skrifað 13.8.2010 kl. 14:04 af Veiðifélagið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.8.2010

Ekki við

Skoða nánar

4.8.2010

Jöklusvæðið

Skoða nánar

1.8.2010

Menn mættir í hlíðina

Skoða nánar

30.7.2010

Húseyjarkvísl 117 stk

Skoða nánar

19.7.2010

Skoða nánar

18.7.2010

Margrét Árnadóttir

Skoða nánar

17.7.2010

3 laxar hjúkkkkiddd

Skoða nánar

16.7.2010

Live Lax lax lax og aftur lax

Skoða nánar

15.7.2010

Laxá í Laxárdal Skagafirði

Skoða nánar

10.7.2010

Live from Elliðaá

Skoða nánar

8.7.2010

Húseyjarkvísl 3-6 júlí

Skoða nánar

5.7.2010

Húseyjarkvísl

Skoða nánar

4.7.2010

Veiðin hálfnuð

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 467
Gestir í dag: 120
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424269
Samtals gestir: 96569
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 19:22:14