Brandarar

3.ára strákur var í baði.
Eftir að hafa grandskoðað á sér punginn
spurði hann mömmu sína:
Mamma: Er þetta heilin í mér?
Mamman svaraði:  Ekki Enn ennþá!!!

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Maður nokkur þurfti að komast á karlaklósettið, en það var upptekið.
Kona, sem þarna var stödd, tók eftir því að maðurinn gekk með
stuttum skrefum og var með örvæntingarsvip á andlitinu.

'Herra minn,' sagði hún, 'kvennaklósettið er laust og þú mátt nota
það ef þú lofar að snerta engan takkanna sem eru á veggnum'.

Maðurinn var alveg kominn í spreng og tilbúinn að lofa hverju sem
var til að leysa málið. 
 


Þar sem hann sat - og leið nú svo miklu betur - fór hann að horfa
á takkana sem hann hafði lofað að snerta ekki.

Það voru 3 hvítir takkar merktir VV, HL og PP og svo var einn
rauður sem merktur var STT.

Hver myndi svosem vita það þó hann snerti þessa takka?
Hann stóðst ekki freistinguna.

Fyrst ýtti hann á VV. Volgt vatn úðaði mjúklega undirvagninn.
Manninum leið voða vel. Svona lúxus var sko ekki á karlaklósettum.
Í von um áframhaldandi sælu ýtti hann á HL takkann.

Hlýtt loft lék nú um neðri hæðina, honum til ómældrar ánægju.
Nú gat ekkert stoppað manninn.

Hann ýtti á takkann merktan PP og nú birtist púðurkvasti sem
púðraði allt fíniríið. Þvílíkur unaður!

Maðurinn gat varla beðið eftir því að ýta á rauða takkann.
Hann hafði grun um að þar væri ekkert minna en alsælan.
 


-------
   
Hann vissi að hann var á spítala strax og hann opnaði augun.
Hjúkrunarkona var yfir honum, með glott á andlitinu.

'Hvað skeði? Af hverju er ég hérna? Það síðasta sem ég man er
að ég var á kvennaklósetti!'

'Þú ýttir á einum of marga takka' svaraði hjúkrunarkonan brosandi.

'Rauði takkinn, sem merktur er STT, er sjálfvirkur
túr-tappatogari.
Tippið af þér er undir koddanum þínum'.



XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Hjón nokkur fóru á fæðindardeild til að fæða barn sitt.
Þegar þau  komu þangað sagði læknirinn að hann hefði fundið upp tæki sem færði hluta  af fæðingjarverkjum frá móður til föður.

Hann spurði hvort þau væru tilbúin  að prufa tækið.
Þau voru bæði spennt fyrir því.

Læknirinn byrjaði á 10% þar  sem þar væri líklega meiri verkur en eiginmaðurinn hefði áður upplifað. 

Eftir því sem lengra leið á fæðinguna bar maðurinn sig vel og sagði lækninum  að hækka í tækinu.

Læknirinn hækkaði í 20% og síðan í 50%.

Enn  var eiginmaðurinn stálsleginn og bað lækninn að færa alla verkina yfir á  sig.

Fæðingin gekk mjög vel og móðirin fann ekkert fyrir öllu  saman.
Eiginmaðurinn var stálsleginn.


Þegar þau komu heim lá  bréfberinn dauður á tröppunum fyrir framan  húsið.


XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Góður...

Miðaldra kona stendur allsber fyrir framan spegilinn í svefnherberginu og dæsir. Karl hennar uppi í rúmi að lesa blað.

-Almáttugur að sjá hvernig ég er orðin segir hún, brjóstin komin niður á maga, rassinn ofan í gólf, allt í appelsínuhúð og keppum!
Magnús segðu eitthvað jákvætt til að hressa mig við.

-Ja, þú ert allavega með góða sjón, segir hann.



XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Jói litli er sá klárasti í bekknum, og er alltaf fyrstur að klára prófin og spurningarblöðin. Svo að hann hafi nú eitthvað að gera
 

eftir að hann var fyrstur búinn að svara spurningarblaði kennarans, 

ákvað kennarinn að spyrja hann aukaspurningar.
 
 
"Jói minn, þú ert nú svo klár, að ég ætla að spyrja þig einnar  
 
aukaspurninar. Það eru 5 fuglar á grein, þú ert með byssu og skýtur 

einn fuglinn, hvað eru þá margir fuglar eftir?" 
"Enginn" svarar Jói.
 
 
"Hvað meinar þú... enginn?", spyr kennslukonan?
 
 
"Já, einn drepst, dettur til jarðar og hinir fljúga í burtu" segir Jói 
 
Kennslukonan kinkar kolli og segir "svarið átti nú að vera 4, en mér líkar hvernig þú hugsar"
 
 
Örstuttu seinna réttir jói litli upp hendi.
 
 
"Já Jói"
 
 
"Má ég spyrja þig einnar spurningar?"
 
 
"Endilega" segir kennslukonan.
 
 
"Ókei, 3 konur standa við ísbíl, og allar eru búnar að kaupa sér ís, 

ein af þeim sleikir ísinn, ein af þeim bítur í ísinn og ein  af þeim 
sýgur ísinn. Hver þeirra er gift?" Spyr Jói 
 
Kennslukonan roðnar og segir, "Eee....ég veit ekki alveg, ætli það sé 

ekki sú sem sýgur ísinn?....eða eitthvað" 
 
"Neeiiii" segir Jói litli, "það er sú sem er með giftingarhringinn, 

en mér líkar hvernig þú hugsar"


XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

KRAFTAVERK SALERNISPAPPÍRS


Hrein og fersk  eftir sturtu, stóð ég framanvið spegilinn, ég virti fyrir
mér brjóstin á mér og að vanda kvartaði ég yfir því hvað þau eru smá!

Í stað venjulega svarsins um að brjóstin á mér væru  ekkert smá,
breytti maðurinn minn út af venjunni og kom með  tillögu.

"Viljir þú að brjóstin stækki, skaltu daglega nudda  salernispappír á
milli þeirra í nokkrar sekúndur."

Þar sem að ég  vildi reyna hvað sem væri, sótti ég mér blað af
salernispappír og stóð síðan  framan við spegilinn,
nuddandi því á milli brjóstanna  minna.

"Hvað þarf ég að gera þetta oft"  Spurði  ég.

"Þau munu vaxa þeim mun meira sem þú gerir þetta oftar," 
svaraði kallinn minn.

Ég hætti.

"Trúirðu því virkilega  að mér nægi að nudda klósettpappír á milli
brjóstanna daglega til þess að fá  þau til að stækka?"


Án þess að líta upp svaraði  hann,

"Virkaði á rassinn á þér, ekki satt?"


Hann lifir enn og með mikilli sjúkrameðferð getur verið að hann gangi
á ný, jafnvel þótt hann muni áfram fá sína næringu um strá.

Heimski,  heimski karl. (sannleikurinn getur verið sár,
Konur ekki spurja okkur spurninga sem þið viljið ekki vita savarið við)



XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Nýlega sendu Sameinuðu þjóðirnar eftirfarandi beiðni til þjóða heims:

"Viljið þið vinsamlegast gefa okkur heiðarlega skoðun ykkar á því hvaða lausn kæmi helst til greina til að koma í veg fyrir matarskort um allan heim."

Svörin komu mjög á óvart:
Afríkubúar vissu ekki hvað orðið "matur" þýddi.
Austur-Evrópumenn skildu ekki orðið "heiðarlega"
og Vesturlandabúar ekki orðið "skortur".
Í Kína vandræðuðust menn með orðið "skoðun".
Í Miðausturlöndum ríkti óvissa með orðið "lausn"
og í Suður-Afríku klóruðu menn sér í kollinum yfir orðinu "vinsamlegast".
Í Bandaríkjunum vissi enginn hvað "um allan heim" þýddi.


Svona er nú skilningur heimsins misjafn.
 




XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Ný sætilbelta hönnun 45% minna af óhöppum
Er orðinn skylda í alla bíla á Íslandi.


XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX 

 Þegar konum verður mikið niðri fyrir og tala hátt í nöldurtón við eiginmenn sína, þá kemur ákveðinn eiginleiki hjá karlmönnum í ljós.
Þeir hætta að heyra!... nema kannski stöku orð og þá brenglast
gjarnan skilboðin sem konurnar eru að koma á framfæri.

Þegar konan segir:

"Íbúðin er öll í drasli! Komdu! Við verðum að taka til,Þú og ég!
Draslið þitt er liggjandi á gólfinu og þú hefur engin föt til að 
fara í ef við setjum ekki í vél strax!"

Þá heyrir karlmaðurinn:


blah,blah,blah,blah, KOMDU!

blah,blah,blah,blah, ÞÚ OG ÉG

blah, blah,blah,blah, LIGGJANDI Á GÓLFINU

blah,blah,blah,blah, ENGIN FÖT

blah,blah,blah,blah, STRAX!




xXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Nunnan og Strætóbílstjórinn

Nunna kemur inn í strætó og sest beint fyrir aftan bílstjórann. Hún segir honum að hún sé dauðvona og að eina óskin sem hún
eigi sé að upplifa kynlíf áður en hún deyr.

Bílstjórinn samþykkir að uppfylla óskina hennar en nunnan segir honum að hún geti

ekkert gert ef hann er giftur því þá komist hún ekki til himna.

Bílstjórinn segir að það sé ekkert vandamál því hann sé ekki

giftur.

Nunnan segist líka verða að deyja jómfrú svo að hann megi bara notast við aftara gatið.

Það er heldur ekkert vandamál
segir bílstjórinn.

Þar sem þau voru eina fólkið í strætó þá fóru þau aftast í vagninn og gengu frá sínum málum.
Þegar þau
höfðu lokið sér af og bílstjórinn var aftur farinn að keyra
sagði hann: Ágæta systir, ég verð að játa eitt fyrir þér.
Ég er giftur og á þrjú börn.

Þá svarar nunnan: Það er ekkert mál því ég verð líka að játa eitt fyrir þér.

Ég heiti Páll Óskar og er á leiðinni á grímuball.



XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Aðlögunarhæfni kvenna er aðdáunarverð.....!

Hjón nokkur eru á mjög fínu veitingahúsi að borða þegar allt í einu
birtist gullfalleg stúlka við borðið þeirra og gefur manninum
svakalegan
koss, beint á munninn, segist ætla að hitta hann seinna og hverfur jafn
skyndilega og hún birtist.

Konan hans starir á hann og segir: "Hver í veröldinni var þetta??"

"Ó, þessi ? Þetta var viðhaldið mitt, " segir hann rólegur.

"Jæja já !! Þetta fyllir mælinn. Ég heimta skilnað."

"Ég get skilið það," svara eiginmaðurinn, "en mundu eitt, ef við
skiljum

þá þýðir það að þú ferð ekki fleiri verslunarferðir til Parísar, ekki
fleiri vetrarferðir til Barbados, ekki fleiri sumarferðir til Toscana
og það verða ekki lengur BMW og Porsche í bílskúrnum þínum.
Þú missir klúbbskírteinið í skútuklúbbnum og þú þarft ekki mæta meira í
golf,
en ákvörðunin er þín."

Einmitt þá kemur inn sameiginlegur vinur þeirra inn á veitinghúsið
með rosa gellu uppá arminn.

"Hver er þessi kona með Svenna?" spyr konan.

"Þetta er viðhaldið hans, " svarar eiginmaðurinn.

Þá segir konan:
 "Okkar er sætari!"

Hvernig á að heilla konu:
Hrósaðu henni, faðmaðu hana, kysstu hana, haltu utan um hana, elskaðu hana, strjúktu henni, stríddu henni, huggaðu hana, verndaðu hana, eyddu peningum í hana, bjóddu henni út að borða, kauptu gjafir handa henni, hlustaðu á hana, stattu við hlið hennar, styddu hana, farðu hvert sem er fyrir hana...

Hvernig á að heilla mann:





Mættu nakin... með bjór.




XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Veiðisaga ársins

86.ára gamall maður fór til læknins í reglulegt tékk.....


Læknirinn spurði  gamla hvernig honum líði, og gamli maðurinn
svaraði: Allt frábært, gæti ekki verið betra,
Nú er ég giftur einni 20.ára og hún er ólétt með barnið mitt,

Hvað finnst þér um það?




Læknirinn hugsaði sig um í smá stund og byrjaði að segja
gamla manninum sögu.....

Ég á vin sem er á sama aldri og þú og er mikill skotveiðimaður
og missir sjaldan af skyttiríisferð



Dag einn var hann að fara að veiða.
Hann var að flýta sér frekar mikið, og í staðinn fyrir að taka riffilinn
sinn tók hann göngustafinn sinn með.
Þegar hann var kominn upp á fjall sá hann risastóran hreindýratarf.....



Þá gerði hann sér grein fyrir því að hann hafði tekið göngustafinn í stað
riffilsins og næði ekki að skjóta þenna svaka tarf.

Af gömlum vana setti hann samt stafinn upp að öxlinni, miðaði á tarfinn
og sagði "pang pang"

Á einhvern óskyljalegan hátt fóru tvö riffilsskot í tarfinn og hann
datt niður dauður....



Svo hvað finnst þér um þetta? spurði Læknirinn.

Gamli 86.ára maðurinn sagði:
Ef ég á að svara að heiðarlega og með rökstuðning þá
er ég ansi hræddur um að það hafi einhver annar
skotið þessu tveimur skotum í Tarfinn.



"Akkuratt það sem ég á við"


XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX



Menntaskólakennari hafði nýlokið við að útskýra mjög mikilvægt rannsóknarverkefni fyrir bekknum.
 
Hann lagði sérstaklega áherslu á að enginn gæti útskrifast úr faginu nema kunna skil á verkefninu.
 
Hann bætti svo við að hann myndi fara ítarlega í verkefnið degi síðar og einu afsakanirnar fyrir því að mæta of seint væri ef dauðsfall hefði orðið í fjölskyldunni eða illvígur sjúkdómur myndi leggja einhvern í rúmið.

Mesti gæinn í bekknum rétti upp höndina og spurði:,,En hvað ef maður er gjörsamlega búinn eftir geggjað kynlíf, kennari??

Bekkurinn sprakk úr hlátri og gæinn var montinn með að hafa valtað yfir kennarann.

Þegar nemendurnir höfðu jafnað sig eftir hláturinn , leit kennarinn á gæjann og sagði:

Ég býst við að þú þurfir þá bara að læra að skrifa með hinni hendinni

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX


Hér fyrir neðan koma pælingar um hlutabréfamarkaðinn, og hvaða hluti væri skynsamlegast að eyða í ef þú sért að spá í aðfjárfesta 1000$ í eitthvað sniðugt.
 
Ef þú hefðir keypt hlutabréf í Nortel fyrir þúsund dollara fyrir ári síðan, þá væru þau 49 dollara virði í dag.
 
Ef þú hefðir valið Enron þá væru bréfin þín 16,5 dollara virði meðað við að höfuðstóllinn hefði verið 1000 dollarar.
 
Ef WorldCom hefði verið fyrir valinu væri 5 Dollarar eftir.
 
Ef þú hefðir eitt 1000 dollurum í Delta Air Lines væri verðmæti þeirra 49 dollarar í dag.
 
En, ef þú hefðir bara farið í áfengisverslun og eitt þúsund dollurum í bjór í dós, drukkið hann allan á einu ári, farið svo með dósirnar í endurvinnsluna, þá ættir þú 214 dollara.
 
Miðað við niðurstöðurnar hér að ofan, þá er besta fjárfestingin sem þú getur gert í dag að drekka mikið af öli og spá ekki í annað en að fara með dósirnar í endurvinnslu. 

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
 

Þegar konur eldast. Grein eftir Jón Jónsson

Það er mikilvægt fyrir karlmenn að muna, að eftir því sem konur eldast verður erfiðara fyrir þær að halda sömu gæðum í húsverkunum og þegar þær voru ungar.

Þegar þú tekur eftir þessu, reyndu ekki að æpa á hana.

Sumar konur eru ofurviðkvæmar, og það er ekkert verra til en ofurviðkvæm kona.

Ég heiti Jón.

Ég ætla að segja ykkur hvernig ég tókst á við þetta ástand varðandi konuna mína ? hana Siggu.

Þegar ég settist í helgan stein fyrir nokkrum árum, þurfti Sigga auðvitað að fá sér heildagsvinnu meðfram hlutastarfinu, bæði til þess að auka tekjur heimilisins og halda sparnaði okkar hjóna gangandi.

Fljótlega eftir að hún fór að vinna tók ég þó eftir að aldurinn fór að sjást á henni.

Ég kem venjulega heim úr golfi á sama tíma og hún kemur heim úr vinnunni.

Þó hún viti hvað ég er svangur, þá þarf hún næstum alltaf að hvíla sig í hálftíma áður en hún fer að elda matinn.

Ég æpi þó ekki á hana. Í staðinn segi ég henni að taka þann tíma sem hún þarf og vekja mig bara þegar maturinn er kominn á borðið.

Ég borða venjulega hádegismat í ?Heiðursmannagrillinu? í klúbbhúsinu þannig að það er auðvitað ekkert á dagskránni að fara út að borða.

Áður fyrr var Sigga vön að vaska upp um leið og við vorum búin að borða.

Nú er hinsvegar ekkert óvenjulegt að það bíði jafnvel í nokkra tíma. Ég geri það sem ég get með því að minna hana á það á nærgætinn hátt að diskarnir þvoi sig ekki sjálfir.

Ég veit að hún kann að meta þetta, þar sem það virðist hvetja hana til að klára uppvaskið áður en hún fer að sofa.

Annað einkenni öldrunar er kvörtunaráráttan held ég. Til dæmis heldur hún því fram að það sé erfitt að finna tíma til að greiða reikningana í matartímanum.

En strákar, við lofuðum að standa með þeim í blíðu og stríðu, svo ég brosi bara og býð fram hvatningu.

Ég segi henni bara að dreifa þessu á tvo til þrjá daga. Þannig þarf hún ekki að flýta sér eins mikið. Ég minni hana líka á að þótt hún missi af matartímanum af og til sé það allt í lagi ( þið vitið hvað ég meina ).

Mér finnst reyndar nærgætni einn af mínum betri kostum.Þegar hún vinnur einfaldari verkefni, virðist hún halda að hún þurfi fleiri hvíldarstundir.

Hún varð til dæmis að taka pásu þegar hún var einungis hálfnuð með að slá blettinn. Ég reyni að vera ekki með uppistand. Ég er sanngjarn maður. Ég segi henni að útbúa sér stórt glas af nýpressuðum köldum appelsínusafa og setjast í smástund.

Og þar sem hún er að gera þetta, bið ég hana að blanda einn fyrir mig í leiðinni.

Ég veit að væntanlega lít ég út eins og dýrlingur vegna þess hvernig ég styð hana Siggu mína.

Það er ekkert auðvelt að sýna svona mikla tillitssemi. Mörgum karlmönnum finnst það erfitt. Og mörgum finnst það alveg ómögulegt !

Það veit enginn betur en ég hversu pirrandi konur verða þegar þær eldast. En strákar, ef þið hafið lært það af þessarri grein að vera nærgætnari og minna gagnrýnir á konurnar ykkar sem eru að eldast ? lít ég svo á að þetta hafi verið þess virði að setja á blað.

Við megum ekki gleyma því að við fæddumst á þessa jörð til hjálpa hver öðrum.Kveðja,
Jón Jónsson

Athugasemd ritstjóra:
Jón Jónsson lést skyndilega þann 27. maí sl. af blæðingum í endaþarmi. Samkvæmt lögregluskýrslu fannst Calloway extra löng 50 tommu Big Bertha golfkylfa á kafi í rassgatinu á honum, þannig að aðeins stóðu tíu cm af handfanginu út, og við hliðina var sleggja.

Sigríður konan hans var handtekin og ákærð fyrir morðið. Kviðdómurinn sem eingöngu var skipaður konum var 15 mínútur að komast að niðurstöðu sem var þessi: Við föllumst á það sem fram kemur í vörn Sigríðar að Jón hafi einhvern veginn, án þess að
gera sér grein fyrir því, sest ofan á eigin golfkylfu

XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX

Kæri læknir (karlmenn kunna að forgangsraða)

Mig vantar svar við vandamáli, en þannig er að konan mín  vinnur oft lengur en hún þarf og kemur heim seint og angar þá af rakspíra.   Hún brjálast ef ég skoða gsm-ann hennar og fær oft dularfull símtöl í  heimasímann sem hún neitar að segja frá.  Hún er stundum úti á kvöldin og  er þá keyrð heim af ókunnum vini.  Einu sinni ætlaði ég að njósna og gá  hver þessi óþekkti maður væri, svo rétt áður en hún kom heim, læddist ég út og  faldi mig bak við mótorhjólið mitt.  Þá sá ég olíuleka á hjólinu.  Og  nú spyr ég, kæri póstur, er eðlilegt að það komi leki á hjól sem er aðeins búið  að keyra um 20.000 km?

Flettingar í dag: 500
Gestir í dag: 123
Flettingar í gær: 786
Gestir í gær: 183
Samtals flettingar: 424302
Samtals gestir: 96572
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 20:06:01